Leita í fréttum mbl.is

Framtíðarsýn unga fólksins?

Hef áhyggjur af öllu því unga fólki sem hefur verið að kaupa sínar íbúðir að undanförnu. Unga fólkið okkar sem hefur talið að krepputal sé aðeins eitthvað sem aðeins er til í hugum miðalda fólk. Þetta sama fólk sem óhrætt tók lán upp að 100% af verði fasteignarinnar.

Hvað gerist ef spá Seðlabankans rætist?

Hversu mikið af þessu unga fólki stendur þá árið 2010 uppi með óseljanlegar eignir og skuldar bankanum meira en það getur nokkuð tíman selt eignina fyrir.

Hrina gjaldþrota mun þá eiga sér stað meðal unga fólksins og án efa mun þetta sama unga fólk velja það að hverfa úr landi og leita tækifæra annars staðar.

Er þetta sú framtíðarsýn sem íslensk stjórnvöld vilja bjóða unga fólkinu okkar upp á? Það þarf aðgerðir strax.

 


mbl.is Alvarleg staða efnahagsmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Kristinsdóttir

Sæll fullur,

Byrja á að segja þér að mín skoðun er sú að athugasemdir "nafnlausra" einstaklinga á blogginu er varla svara verðar. Ef menn  ekki hafa þor til að tala í eigin nafni eiga þeir að mínu mati ekkert erindi á bloggið. Þeir sem það kjósa geta sagt allt það sem þeir kjósa nafnlaust á málefnum.com

Ég ekki kenni ég Davíð einum um ástandið þótt misvitrir stjórnmálamenn eigi stóran hluta af sökinni.

Ég sem uppalandi ber t.d. hluta af ábyrgðinni ef mér hefur ekki tekist að gera mínu fólki grein fyrir því hvernig ábyrgð fjármálastjórn er á góðum heimilum.

Bankarnir bera hluta af ábyrgðinni með því  á því að lána óheft til einstaklinga.

Stjórnvöld að hluta, því þeirra er að skapa það umhverfi sem gerir fólki kleyft að koma sér þaki yfir höfuðið.

Og svona getum við haldið áfram.

Anna Kristinsdóttir, 11.4.2008 kl. 17:40

2 Smámynd: Anna Kristinsdóttir

Menn með mikilmennskubrjálaði er mér ekki að skapi.

Vel því að svara þér ekki meðan þú telur þig mér æðri, það eitt sýnir að þú þekki mig ekki og skoðanir mínar.

Með virðingu og vinsemd

Anna Kristinsdóttir, 11.4.2008 kl. 19:00

3 identicon

Verðtryggingin er líklega mesti glæpur Íslandssögunnar. Punktur.

Þór (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 21:57

4 identicon

Ábyrgur og velmeinandi stjórnmálaflokkur lofaði kjósendum - eitt sinn fyrir kosningar - að útvega þeim svonefnd 90% lán til húsnæðiskaupa. Og stóð við það.

Það var mikil framsýni og gert með þjóðarhag fyrir brjósti. Ekkert annað.

Rómverji (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 00:20

5 Smámynd: Anna Kristinsdóttir

Prinsippið er eins og ég sagði í fyrsta svarinu að svara ekki "nafnlausum" bloggurum. Það er þó stundum brotið eins og annað í lífinu.

Þú stendur einfaldlega betur en ég að vígi því þú veist hver ég er, en ég ekki hver þú ert. Þannig hefur þú líklega myndað þér einhverskonar skoðun á mér eða mínum skrifum. Þú heldur t.d. þannig að ég tilheyri Framsóknarflokknum.

Stundum hef ég, líkt og flestir, tapað fyrir öðrum í lífinu. Ég tapaði fyrir Birni Inga í prófkjöri en vann Óskar. Svona er það einfaldlega. Svo velur maður og hafnar hvort maður vilji vinna með fólki.

Ég er persónuleg fegin að hafa valið það að vinna ekki með fulltrúum framsóknarflokksins í borgarstjórn á þessu kjörtímabili. Sýnist að þeirra vinnubrögð hafi ekki skapað traust meðal almennings.

Ég tel nú að ég hafi unnið oftar en tapað í lífinu og þeir sigrar sem ég hef unnið skipta mig meira máli en en ósigrarnir. Af þeim getur maður hinsvegar lært.

Þér til upplýsingar er ég ekki talsmaður neins stjórnmálaflokk. Hætti í Framsóknarflokknum s.l. haust vegna skorts á skýrri stefnu þess flokks.

Hef brennandi áhuga á samfélagmálum og vonast til að finna minn flokk til að starfa með fyrr en síðar.

Það er það val sem einstaklingurinn hefur. Það veist þú sem talsmaður frelsis og einstaklingshyggju.

Anna Kristinsdóttir, 13.4.2008 kl. 11:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Kristinsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Stjórnmálafræðingur, MPA nemi og áhugamaður um samfélagsmál

Mitt val

Blogg Gáttin

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband