Leita í fréttum mbl.is

Endurskoðun bóta TR

Formaður Landsambands eldri borgara, Helgi Hjálmarsson, sagði í morgun í fréttum RÚV að það væri naumt skammtað á garðann og að eldri borgarar þurfi 200.000 á mánuði til að lifa mannsæmandi lífi.

Þessi ummæli komu í kjölfar þess að ríkisstjórnin tilkynnti í gær að hún hyggist verja fimm miljörðum á ári í að bæta kjör aldraðra á öryrkja. Í því felst m.a. að skerðing bóta vegna tekna maka verði afnumin 1. apríl og frítekjumark ellilífeyrisþega hækki í hundrað þúsund á mánuði frá fyrsta júlí. Jafnframt að skerðing á lífeyri vegna séreignasparnaðar verði afnumin 1. janúar 2009. Vasapeningur vistmanna á stofnunum hækki næsta ári um 8.000 á mánuði eða um 30%, og verði 36.500.

Nú er það svo að eldri borgarar eru langt í frá að vera einsleitur hópur. Margir þeirra eru í góðum efnum og þurfa alls ekki á greiðslum tryggingastofnunar að halda. Aðrir hafa það verra og þurfa að lifa mjög spart. Það sama á við þegar rætt er um kjör öryrkja og stöðu þeirra.
  
Ríkisstjórnin lofar frekari umbótum á kerfinu.Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um kjarabætur handa eldri borgurum og örykjum kemur fram að á næstu misserum verði unnið að heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins með það fyrir augum að bæta kjör þessara hópa enn frekar á kjörtímabilinu. Félagasmálaráðherra segir að í heildina muni aðgerðirnar kosta meira en fimm miljarða á ári.

Aðalvandinn er að mínu mati sá að lífeyriskerfið sjálft þarf að skera upp. Það  verður að gera betur við þá lífeyrisþega sem á því þurfa að halda og hætta að greiða bætur til þeirra sem eru það vel staddir fjárhagslega að þeir þurfa ekki á slíkum bótagreiðslum að halda.

Slíkt mun til lengri tíma, þótt sársaukafullt sé, skila samfélagi velferðar sem stendur undir nafni.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr, heyr!

Jmh (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 15:31

2 identicon

Ég sé ekki að ekkjan með sem býr ein í leiguhúsnæðir og er orðin 86 ára gömul, sem hefur 17 þús. á mánuði í lífeyrissjóð. Hafi mikið út úr þessu. Ekki hleypur hún út á vinnumarkaðinn, ekki græðir hún á afnámi tekjuskerðingu maka,  jú, hún fær 8 þús. til viðbótar í lífeyrissj. 1. júlí 08. Heyr,heyr. þessi hópur virðist hafa  gleymst, en þurfti líklega mest á þessu að halda. Það er þessi hópur sem formaður félags eldri borgara er vonandi að tala um, þessi hópur er mun stærri en ráðmenn gera sér grein fyrir.

Jóhanna Guðm. (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 08:41

3 Smámynd: Anna Kristinsdóttir

Einmitt þetta sem þarf að leiðrétta. Kerfið þarf að skera upp.

Á mínu heimili býr rúmlega 80 ára ellilífeyrisþegi sem aldrei var á vinnumarkaði nema 10 síðustu starfsárin.  Hann fær því engar greiðslur úr lífeyrissjóð. hann er eignalaus. Hann fær 98 þúsund frá tryggingastofnun á mánuði og á að lifa af því. Veit ekki hvernig hann færi að slíku ef hann þyrfti að greiða fyrir afnot af húsnæði. Það eru ekki allir það heppnir að geta búið hjá ættingjum.

Hér býr líka ungur maður sem er 75% öryrki. Hann fær hærri bætur og vinnur auk þess með skóla. Þegar hann lýkur námi mun hann vinna fulla vinnu.

Hér er líka barn á ummönnunarbótum. Sé ekki að mikil vinna verði fyrir það nema í vernduðu umhverfi. Ég ég kvíði fyrir framtíð þess.

Anna Kristinsdóttir, 7.12.2007 kl. 13:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Kristinsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Stjórnmálafræðingur, MPA nemi og áhugamaður um samfélagsmál

Mitt val

Blogg Gáttin

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband