Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Ungt fólk kýs

Baráttan farin að harðna fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og spennan var mikil í nótt.

Fylgdist með umfjöllun á sjónvarpsstöðvunum og hafði af því bæði gagn og gaman. Eftirtektavert og jákvætt ef ungt fólk kýs nú í meira mæli en áður.

Dræm kosningaþátttaka hefur verið meðal yngsta aldurshópsins 18-24 ára þar í landi. Líkt og hefur verið þróun síðustu ára í flestum lýðræðisríkjum. Kosningaþátttaka þessa aldurshóps hefur í Bandaríkjunum, verið á hraðri niðurleið, allt frá þeim tíma sem hann fékk fyrst kosningarétt.

Þegar þessi aldurhópur kaus fyrst nýtti helmingur kjósenda rétt sinn til að kjósa. Í síðustu kosningum var hinsvegar aðeins 25% þessa unga fólks sem nýtti sér kosningarétt sinn.

Í kosningunum árið 2000 kusu 68% þeirra sem voru 65 ára og eldri, meðan 68% þeirra sem voru 25 ára og yngri tóku ekki tóku þátt.

Þetta gerðist jafnvel þótt sérstakt átak hafi verið gert bæði innan fylkja og í landinu öllu til þess að hvetja ungt fólk til þátttöku.  Kannski er sú vinna að skila sér og það að baráttan er hörð á milli Clinton og Obama.

Vonandi heldur þessi aukna þátttakan ungs fólks  í kosningum áfram. Við þurfum á henni að halda.


mbl.is Ungt fólk velur demókrata
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tími til breytinga

Þegar þriðji meirihlutinn í borginni var myndaður eftir að rúmlega eitt og hálft ár var liðið af kjörtímabilinu, var mörgum íbúum borgarinnar nóg boðið. Þetta form fulltrúalýðræðis virtist ekki vera að gera sig. Traust almennings beið hnekki.

 

Upplausn, þar sem völd einstakra borgarfulltrúa virtust skipta meira máli en hagsmunir íbúanna virtist vera það sem gilti. Þrír stjórnmálaflokkar með 1-2 fulltrúa hver virtust þannig hafa í hendi sér stöðuleika í stjórnkerfinu.

 

Eins manns óstöðugur meirihluti við stjórn borgarinnar var raunveruleiki, eftir að framboði um Reykjavíkurlista naut ekki lengur við. Annar turninn var horfinn af sjónarsviðinu og ekki mátti neinu muna til að menn hlypu frá borði . Fyrri stöðuleika við stjórn borgarinnar skorti.

 

Í Reykjavík hafði Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta um áratuga skeið, allt til ársins 1978 og aftur 1982 til 1994. Í kosningunum 1990 náðu þeir 10 kjörnum fulltrúum en frá þeim tíma hafa þeir ekki náð hreinum meirihluta. Um 12 ára skeið með framboði um Reykjavíkurlista mynduðust tveir pólar í sveitarstjórnarmálum í borginni.

Sérkennilegt ástand hafði skapast og hvað var til ráða?

 

Árið 2006 þegar kosið til borgarstjórnar var íbúafjöldi í borginni 116 þúsund. Kosnir voru 15 borgarfulltrúar til þess að fara með málefni borgarinnar.

 

Árið 1908 var einnig kosið til borgarstjórnar Reykjavíkur. Þá voru kosnir 15 bæjarfulltrúar eftir að lögum var breytt 1907 og fjölgað um 2 í bæjarstjórn. Á þessum tíma bjuggu í Reykjavík um 11 þúsund manns.

 

Ekki er erfitt að ímynda sér þær gífurlegu breytingar sem orðið hafa í borginni á þessum tíma. Starfsmannafjöldi í borgarkerfinu margfaldast og stjórnkerfið allt þanist út.

 

En áfram eru borgarfulltrúarnir  fimmtán. Verkefnin margföld og enn  stýra borgarfulltrúarnir 15 öllum málum. Þeir virðast eiga fullt í fangi með að sinna þeim verkefnum sem fylgir því að vera kjörin fulltrúi. Jafnvel telja sumir að gegna megi öðrum störfum samhliða. Þegar átök um völd bætast við gefur eitthvað eftir.

 

Í sveitarstjórnarlögum hér á landi er kveðið á um hámarksfjölda kjörinna fulltrúa. Í sveitarfélögum þar sem íbúar eru 50.000 eða fleiri eiga að vera 15–27 aðalmenn.

í Evrópu og víðar eru ákvæði um lágmarksfjölda kjörinna fulltrúa í hlutfalli við íbúafjölda sveitarfélaga og samkvæmt sveitarstjórnarlögum í Noregi ættu kjörnir fulltrúar í Reykjavík t.d. að vera a.m.k. 45.

 

Það að fjölga fulltrúum í borgarstjórn á ekki að vera erfitt. Aukin launakostnað þyrfti ekki einu sinni að koma til við slíka fjölgun. Afnema  mætti laun varaborgarfulltrúa og hætta að greiða aukalega fyrir setu í fyrirtækjum borgarinnar. Slíkt myndi auk þess leiða til meira launalegs jafnræðis meðal borgarfulltrúa.

 

Fleiri framboð, jafnvel frá íbúunum sjálfum myndu auka breidd við stjórnun borgarinnar. Auðveldara væri þannig að mynda meirihluta fleiri flokka.   Með meiri meirihluta en einum manni.

 

Ekki fullgerð eða fullkomin lausn, en ég held að slík breyting geti verið skref í rétt átt til þess að skapa aftur tiltrú almenning til stjórnar borgarinnar.

Einhverju verður að breyta.


Fámennið hjálpar til

Þetta sýnir okkur enn og aftur kosti þess að búa í örsmáu samfélagi lengst úti í hafi.

Samfélagið er svo fámennt að það er ekki nokkur von að komast undan með þýfið sem auk þess er oftast í íslenskum krónum. 

Góðkunningjarnir lögreglu þekkjast og oftast tengjast þessi rán fíkniefnaneyslu. Nær undantekningalaust komast slíkir glæpir upp vegna að fleiri en tveir vita af undirbúningi þeirra.

Í Silfrinu í gær ræddi Björn Bjarnason um erlendar glæpaklíkur sem sækja nú í meira mæli til landsins. Það er umhugsunarvert hversu lengi við getum verið örugg hér í fámenninu.

Verðum að vera vakandi fyrir þeim breytingum sem eru að verða á samfélaginu samhliða þessu og bregðast við glæpum slíkra hópa af hörku. Það yrði þá öðrum til viðvörunar.

 


mbl.is Öxin fannst og þýfi endurheimt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur Sjálfstæðisflokkurinn minnkað?

Ljóst eftir síðustu skoðanakannanir að kjósendur sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eru ekki ánægðir með nýja meirihlutann. Held að það sé frekar það, en vinnubrögðin við skipan hans.

Ekki heldur ljóst hvað slík niðursveifla varir lengi. Minni kjósenda er ekki mjög langt. Óvíst að þessar breytingar á fylgi flokksins verði nema til nokkra vikna.

Hinsvegar verða borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins að stíga öll sín skref varlega ef þeir ætla að ná fyrri stöðu fyrir flokkinn í borginni. Erfið staða sem þeir eru í og fróðlegt verður að fylgjast með verkum þeirra á næstu misserum.

Velti því fyrir hvort Sjálfstæðisflokkurinn fari að upplifa þá stöðu að flokkurinn geti minnkað í samstarfi við annan stóran flokk. Á síðustu áratugum hefur lenskan verið sú að litlir flokkar, Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur, hafa misst mikið fylgi í samstarfi við Sjálfsæðisflokkinn í landsmálum. Á meðan hefur Sjálfstæðisflokkur haldið sínu, eins og úrslit kosninga á síðustu áratugum sína.

Nú er flokkarnir tveir í ríkisstjórn báðir stórir og öflugir. Sjálfstæðismenn hafa líka verið í nokkuð erfiðum málum að undanförnu á meðan Samfylkingin hefur verið að gera vel.

Kannski er komið að þeim tímapunkti að Sjálfstæðisflokkurinn fari að missa fylgi líkt og gerst hefur fyrir aðra stjórnmálaflokka  í ríkistjórnarsamstarfi? Þá er spurning hvert það fylgi fer.


mbl.is Fundað í Valhöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Anna Kristinsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Stjórnmálafræðingur, MPA nemi og áhugamaður um samfélagsmál

Mitt val

Blogg Gáttin

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband