Leita í fréttum mbl.is

Ólík verkefni og langir dagar

Vikan hefur verið  annasöm og nauðsynlegt að skipuleggja tímann vel til að koma að öllu þeim verkefnum sem nauðsynlegt er. Fólk eins og ég, sem gjarnt er að segja já  þegar það er beðið að leggja góðum málum lið virðist sífellt verið beðið um að koma að fleiri verkefnum.

 

Á mánudaginn eftir að skóla lauk tók við æfing vegna komandi árshátíðar starfsfólks Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardalnum. Þetta verkefni felur í sér söng með góðum hóp kvenna og þar er hæfileikum mínum ekki alveg fyrir að fara. En viljann verður að taka  fyrir verkið. Að henni lokinni tók svo við verkefnavinna vegna námsins.

 

Á þriðjudag var vinnudagur hjá mér við verkefni Alþjóðleika ungmenna. Auk þessa var stjórnarfundur og aðalfundur Félagsbústaða. Ég hef setið í stjórn Félagsbústaða s.l. ár og haft af því ánægju. Mér var hins vegar tilkynnt í lok síðustu viku að annar aðili tæki við stjórnarsæti mínu þar. Það verður að viðurkennast að mér hefur oft fundist gott að búa yfir margháttaðari reynslu minni sem fyrrv. Borgarfulltrúi í setu minni í stjórninni. En það er annara að meta hvort slík reynsla kemur að notum.

 

Á miðvikudag tóku við fundir eftir að skóla lauk og stóðu þeir fram eftir degi

 

Á fimmtudag byrjaði dagurinn með fundi í  kosningastjórn framsóknarflokksins í Reykjavík og hófst hann kl. 7.30 Farið var yfir málin með efstu mönnum listans og ljóst að menn eru órþeyjufullir að takast á við baráttuna framundan. Síðan tók við starf vegna Alþjóðaleikana. Um kvöldið var síðan fundað með hópi áhugasamra íbúa í hverfinu mínu sem hafa hug á að koma á íbúasamtökum í Háleiti. Stækka á hópinn og boða til frekari fundarhalda á næstu vikum. Áhugasamir mega senda mér póst á annakr@annakr.is

 

Á föstudag eftir að skóla lauk tók við ein söngæfingin og síðan verkefni tengd náminu.

 

Á morgun laugardag mun síðan rekstrarstjórn skíðasvæðanna á höfðurborgarsvæðinu hittast.

 

Einhverra hluta vegna er vikan sífelt að styttast og tíminn líður hraðar og hraðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Kristinsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Stjórnmálafræðingur, MPA nemi og áhugamaður um samfélagsmál

Mitt val

Blogg Gáttin

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband