Leita í fréttum mbl.is

Völdin og stjórnmálamennirnir

Í september s.l. skrifaði ég nokkur orð um stjórnmálamenn og völd. Held að það sé full ástæða til að birta  þennan pistil aftur.

Völd geta haft ótrúleg áhrif á fólk. Því miður oft til hins verra. Þess sér maður oft merki í stjórnmálum.

Í kosningabaráttu eru frambjóðendur allra manna alþýðlegastir, ganga á milli almennings og heilsa öllum sem á leið þeirra verða. Láta hafa sig í allavega trúðslæti og ganga um margt úr sinni eigin persónu. Slá met í brosi og hlýleika og gera allt til að fá kjósendur á sitt band. 

Eftir kosningar eru að sjálfsögðu margir þeirra sem náð hafa kjöri fullir orku að takast á við verkefni stjórnmálamannsins. Þetta verkefni sem þó er aðeins að hámark til fjögurra ára í senn og snýst um það að fara vel og rétt með umboð kjósenda sinna. Þegar sumir stjórnmálamenn hafa hlotið kjör er þó hinsvegar oft eins og nýtt andlit sé sett upp hjá þessum nýkjörnu fulltrúum. Það er eins og forleikurinn hafi aðeins verið sjónarspil.

Margir þessara stjórnmálamanna eru fljótir að gleymi því fyrir hvað þér hafa hlotið upphefð sína. Hversvegna þeir sitja í embætti. Það er einfaldlega oft á tíðum ekki eingöngu vegna hæfileika eða getu viðkomandi, heldur ekki síst vegna styrk ákveðins stjórnmálaflokks og stöðu þeirra í því samfélagi.

Síðan gerist það oft að þegar líður á kjörtímabilið að þá er eins og menn gleymi fyrir hverja þeir sitja sem kjörnir fulltrúar. Í stað þess að þjóna almenningi eða kjósendum sínum, halda menn að þeir séu þarna fyrir sjálfan sig. Þá fyrst fara vandamálin að líta dagsins ljós.

Upphefðin getur nefnilega stigi öllum til höfuðs.  Þeir hætta samskiptum við þá aðila sem komu þeim í valdastólana. Telja sig yfir það hafna að hafa samband við almúgann eða grasrótina. Þeir eru til þess valdir að umgangast fyrirmenn þjóða og tigin fyrirmenni. Þurfa vegna þessa ekki að hafa nema lágmarks samskipti við aðra.

Afverju skrifa ég þetta. Jú ég las nefnilega afar fróðlegt viðtal við Uffe Eleman Jensen fyrrverandi Utanríkisráðherra og formann Venstre í Danmerkurferð minni um daginn. Hann sagði m.a. að það hefði verið sín mesta gæfa í lífinu að hafa aldrei orðið forsætisráðherra Danmerkur en hann sóttist  þó eftir því árum saman. Það sama hafi átt við um stöðu framkvæmdastjóra NATO sem hann sóttist einnig eftir. Hann taldi að hann hefði á þessum tíma verið komið svo langt frá þeim raunveruleika sem venjulegt fólk býr við og þakkaði fyrir það að hafa ekki færst enn lengra frá frá almenningi.

Það hefði í raun bjargað lífi hans að hljóta ekki þessa upphefð.

Þetta er án efa sá vandi sem margir stjórnmálamenn standa frammi fyrir. Að þeir velji sér aðeins einstaklinga næst sér sem tilheyra hópi viðhlæjanda. Allir sem standa fjær og gagnrýna stjórnmálamanninn er þannig úthrópaðir sem andstæðingur ef ekki eitthvað enn verra.

Þannig gerist það smátt og smátt að sumir stjórnmálamenn eru komnir svo fjarri þeim raunveruleika sem almenningur býr við að þeir hafa ekki lengur nein tengsl við kjósendur. Jafnframt verða þeir hinir sömu ekki lengur hæfir til að taka ákvarðanir í þágu almennings


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Anna það er nokkuð mikið til í þessum pistli hjá þér. Það hefur orðið mikil breyting síðustu 10-15 árin í pólitíkinni á þann veg að kjósendur skipta stjórnmálamenn ekki máli þegar þeir eru komnir á þing.

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 9.2.2008 kl. 13:07

2 identicon

Í framhaldi af kommenti Guðbjargar þá heyrði ég því fleygt fram að síðasti alþýðlegi forsætisráðherra var Steingrímur Hermannsson.

Ólafur Sveinn Haraldsson (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Kristinsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Stjórnmálafræðingur, MPA nemi og áhugamaður um samfélagsmál

Mitt val

Blogg Gáttin

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband