17.3.2007 | 12:00
Að fara yfirum.
Nú er það svo, að auðvitað hljótum við framsóknarmenn að hafa áhyggjur af stöðu flokksins í skoðanakönnunum. En jafnframt hljótum við að bera þá von í brjósti að á þeim dögum sem eru til kosninga náum við að rétta úr kútnum. Að minnsta kosti hef ég ekki trú á því að flokkurinn verði undir 12-14% í kosningum. Á góðum degi 16%.
Ýmsar ástæður höfum við líka á takteinunum þegar við veltum fyrir okkur stöðu flokksins í dag. Langt ríkistjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokki og það að vera minni flokkurinn í slíku samstarfi er eitt. Það að hægri áherslur flokksins fengu meira vægi meðan að Halldór Ásgrímsson fór með formennsku í flokknum, er annað. Og þannig getum við lengi talið.
En á endanum stendur flokkurinn fyrir gildi sem enn eiga heima í íslensku samfélagi og við framsóknarmenn höfum trú á því sem við stöndum fyrir. Þótt illa gangi göngum við bein í baki. og langur vegur frá því að við framsóknarmenn séum að fara yfirum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:12 | Facebook
Mitt val
Blogg Gáttin
Bloggvinir
-
vestfirdingurinn
-
golli
-
bjarnihardar
-
amman
-
jp
-
bjorkv
-
bryndisisfold
-
olimikka
-
salvor
-
agnesasta
-
eyglohardar
-
orri
-
gudfinnur
-
gesturgudjonsson
-
korntop
-
sveitaorar
-
stebbifr
-
helgasigrun
-
kex
-
garibald
-
strandir
-
hlini
-
gullistef
-
bleikaeldingin
-
kristinhelga
-
sigurdurarna
-
perlaheim
-
saethorhelgi
-
tidarandinn
-
gisliivars
-
arndisthor
-
kristbjorg
-
ibb
-
inaval
-
fararstjorinn
-
laugardalur
-
lks
-
hildurhelgas
-
ingithor
-
nonniblogg
-
faereyja
Athugasemdir
Það er nú dálítið seint í rassinn gripið,að fara nú rétt fyrir kosningar að skilgreina mestu afleiki flokksins.Eignaryfitaka á fiskveiðiheimildum grundvallaðar á sölu og leigu kvóta sem gerð var l991.Kvótinn gengur meira segja í erfðir samk.dómi.Sjávarbyggðir lagðar í rúst,eignir fólks verðlausar.Irak málið,engin formleg afsökun né tilkynning ,að ríkisstjórnin sé ekki lengur aðilar að þessu stríði.Svo varð Jón form.að kokgleypa yfirlýsingar sínar um að þjóðareignir verði settar í Stjórnarskrá.Geir stakk honum í rassvasann,þannig hefur íhaldið allt kjörtímabilið verið með Framsóknarfl.í gjögæslu.
Vona samt heilsunnar vegna að þið fáið einhver hálmstrá til að halda í.
Kristján Pétursson, 17.3.2007 kl. 12:30
Er algjörlega óssammála Kristjáni, auk þess sem kratar bera ekki síður ábyrgð á kvótakerfinu og aðrir flokkar. Það sem er að hrella Framsóknarflokkinn sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu er 12 ára
vera hans í hræðslubandalagi vinstriaflanna í R-listanum undir pillsfaldri Ingibjargar Sólrúnar. Sem miðjuflokkur átti Framsóknarflokkurinn þar alls ekki heima og er að súpa seyðið á því á höfuðborgarsvæðinu. Hin ástæðan var endalaust daður Halldórs Ásgrímssonar við Evrópusambandsaðild sem flæmdi fjölda
kjósenda frá flokknun einkum af landsbygðinni.
Hvorugt er fyrir hendi nú og því á Framsóknarflokkurinn alla
möguleika á að endurvinna fylgið á ný, þótt það geti tekið einhvern
tíma. Árangursrík ríkisstjórnarþátttaka í 12 ár spillir þar ekki fyrir
heldur styrkir hans málstað í komandi kosningabaráttu.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 17.3.2007 kl. 13:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.