Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Til hamingju Valsmenn

Nú hefst nýtt sigurtímabil hjá Val.  Mikil sigurgleði á mínu heimili í dag.

Valur vel að þessum sigri kominn.  Nú stefnir allt í nýja sigurgöngu Vals eftir erfitt tímabil að undanförnu.

Til hamingju með daginn


mbl.is Valur Íslandsmeistari í fyrsta skipti í 20 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögbundin þjónusta með langa biðlista

Jóhanna Sigurðardóttir kom fram í fjölmiðlum í lok síðustu viku og tók af skarið í málefnum langveikra barna.

 

Hún sagðist sagði í viðtölum að lög um greiðslur til foreldra langveikra barna ættu að ná til allra, ekki aðeins þeirra sem greindir eru frá árinu 2006. Jóhanna ætlar ekki bara að hækka greiðslur heldur ætlar hún líka að auka þjónustu til þessa hóps. Þessu hljóta allir að fagna.

 

Hitt er annað að þegar félagsmálaráðherra heitir þessum hóp aukinni félagslegri þjónustu staldra ég aðeins við. Hún talar um að veita þessum hóp aukna þjónustu í formi liðveislu og þjónustu í samræmi við aðra stoðþjónustu, skammtímavistun og ýmissa aðra þjónustu sem er í lögum um málefni fatlaðra.

 

Þó þessi þjónusta sé lögbundin  er það  raunin að fæstir fatlaðra njóta hennar. Vandinn er sá að ekki fæst starfsfólk til þess að vinna þessa vinnu. Það fjármagn sem sett er til þessarar þjónustu nægir ekki til.

 

Þetta á við um alla þessa stoðþjónustu og oft margra ára bið eftir úrræðum.

 

Skora á félagsmálaráðherra að auka fjármagn til þessarar lögbundu þjónustu um leið og veita á hana til fleiri hópa.


Seta í pólitískum nefndum

Sú ákvörðun sem heilbrigðisráðherra tók í vikunni sem er líða, að leggja niður nefnd um byggingu hátæknisjúkrahús hefur verið í umræðunni að undanförnu. Ekki síst hefur sú umræða skapast vegna þess að Alfreð Þorsteinsson var á á sínum tíma skipaður formaður nefndarinnar og víkur því nú sæti.

Alfreð er langt í frá fyrsti framsóknarmaðurinn sem hættir stjórnarformennsku í nefndum ríkisins eftir að ný ríkisstjórn tók við fyrir fjórum mánuðum.

Það aðilar ég man eftir í augnablikinu og tengjast framsóknarflokknum, og hafa nú vikið sæti, eru Páll Pétursson sem formann lyfjagreiðslunefndar, Guðjón Ólafur Jónsson sem formaður Vinnumálstofnunar, Fanney Jónsdóttir sem formaður Jafnréttisnefndar, Árni Gunnarsson sem formaður Flóttamannanefndar, Sæunn Stefánsdóttir sem formaður Innflytjendaráðs og svona má áfram telja.

Sumar þessar nefndir voru skipaðar til fjögra ára eftir alþingiskosningar 2003 og því eðlilegt að fulltrúum væri skipt út í kjölfar nýrra ráðherra. Aðrar voru skipaðar ótímabundið eða á milli kosninga.

Þegar nýir stjórnarherrar tóku við í ráðuneytum eftir kosningar var ekki við öðru að búast en þeir vildu hafa við hlið sér félaga sína eða flokksmenn. Eina pólitíska ráðningin sem ráðherrar hafa heimild til, er í raun val á aðstoðarmanni. Aðra starfsmenn ráðuneyta sitja menn upp með. Flestir þessara starfsmanna eru þarna til þess að vinna að málum sinna ráðuneyta eða stofnanna, þvert á allar pólitískar línur.

Það er því ekkert óeðlilegt að þar sem menn hafa heimild til að skipa nefndarformenn vilji menn fá aðila sem öruggt sé að vinni að málum eftir þeirri pólitísku línu sem flokkurinn leggur í viðkomandi málaflokki.

Það á því ekki að vera feimnismál þegar fólk er skipað samkvæmt þessari pólitísku línu, á sama hátt á það ekki að koma á óvart að menn sem ekki tilheyra sama flokki og ráðherrar séu látnir víkja.

Slíkt er heldur ekki áfellisdómur yfir verkum þeirra sem eru látnir víkja, heldur hluti af þeirri hefð sem hefur skapast í íslenskum stjórnmálum.


Græn svæði umfram úrræði

Finnst þessi afstaða VG um margt sérkennileg. 

Þótt mikilsvert sé að halda Laugardalnum, sem þeirri útivistarperlu sem hann er, að mestu án frekari bygginga er þó ekki þar með sagt að hann sé ósnertanlegur.

Það húsnæði sem byggja á þarna og hýsa á geðfatlaða er á því svæði Laugardalsins sem almenningur nýtir í takmörkuðu mæli. Sé sjaldnast fólk á ferli á þessu svæði í ferðum mínum um dalinn.

Hlýtur að vera nauðsynlegt er að hraða þeirri uppbyggingu sem nauðsynlegt er að fari fram í búsetuúrræðum fatlaðra, ekki síst geðfatlaðra.

VG samþykki meðal annar ályktun um þessi mál á landsfundi sínum í febrúar s.l. . Þar kom m.a. fram:

Stórátak í geðheilbrigðismálum

Stórauka þarf áherslu á geðheilbrigðismál og koma á heildrænni stefnu þar að lútandi. Mannréttindasjónarmið, jafnrétti, og sjálfsefling notenda og aðstandenda skulu höfð að leiðarljósi. Brýnt er að vinna gegn fordómum og útskúfun.

Móta þarf heildarstefnu í forvörnum og félagslegum úrræðum, strax frá barnæsku, og tryggja réttindi fólks með geðraskanir, s.s. til viðunandi húsnæðis, félagslegs stuðnings, atvinnuþátttöku, menntunar og þátttöku í samfélaginu.

Ætli fulltrúar VG séu búnir að gleyma þessum fögru fyrirheitum?


mbl.is Skipulagsráð samþykkti að byggja húsnæði fyrir geðfatlaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er verri meiri eða minnihluti?

Fannst hún sérkennileg þessi frétt sem ég sá inni á eyjunni í fyrradag.

"Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti einróma á fundi í kvöld tillögu Gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra, um að óska eftir áliti bæjarlögmanns á því hvort fulltrúi Samfylkingarinnar í skólanefnd bæjarins hefði verið vanhæfur í skilningi stjórnsýslulaga þegar hann tók þátt í að fjalla um og greiða atkvæði með frænda sínum í stöðu aðstoðarskólastjóra við Smáraskóla fyrr í sumar."

Jafnframt var sagt í fréttinni frá því að minnihluti í bæjarstjórn hefði á sama hátt haft efasemdir um hæfi fulltrúa meirihluta fyrr á þessu ári.

Nú er það þannig að hverju sveitarfélagi á að vera það kappsmál að þar sé viðhöfð  góð stjórnsýsla. Þar eiga starfsmenn sveitarfélagsins að vera leiðbeinandi fyrir þá sveitarstjórnarmenn sem þar starfa. Kjörna fulltrúa og nefndarmenn.

Reykjavíkurborg heldur þannig námskeið fyrir nýja sveitarstjórnarmenn eftir hverjar kosningar til þess að fara yfir lög og reglur sem gilda um slík störf.

Ég man ekki betur en mér hafi verið sérstaklega úthlutað riti um fundarsköp og vinnureglur þegar ég tók sæti fyrst í nefnd á vegum Reykjavíkurborgar árið 1998. Þar var m.a. rætt um mögulegt vanhæfni nefndarmanna.

Jafnframt fagnaði ég því hér í pistli þegar samþykkt var samhljóða tillaga um að móta siðareglur fyrir borgarfulltrúa og bíð en eftir að slíkar reglur líti dagsins ljós.

Held að kópavogsbær og önnur sveitarfélög ættu að setja sér slíkar reglur. Jafnhliða ættu meiri-og minnihlutar í sveitarfélögum að sjá metnað sinn í því að móta góða og skilvirka stjórnsýslu.

Það ætti að skila betri árangri fyrir alla í stað þess að standa í deilum um hvort fulltrúar meiri-eða minnihluta kópavogs sýni verri frammistöðu í störfum sínum í sveitarfélaginu.  


Hvenær rís skólinn?

Um margt einstök kona hefur komið málefnum fatlaðra barna á kortið um einhverja stund. Konan er ljósmyndarinn Mary Ellen Mark og sýningin hennar, Undrabörn,  á ljósmyndum af börnum í Öskuhlíðaskóla og Safamýraskóla er ógleymanleg.

Varð reyndar frá að víkja á laugardag þegar sýningin var formlega opnuð í Þjóðminjasafninu vegna mikils mannfjölda, en mun í vikunni fara og skoða hana betur.

Hef hinsvegar lesið nokkur viðtöl við þessa miklu listakonu og séð margar af þessum ógleymanlegu myndum.

Það sem kannski hefur farið fram hjá mörgum er yfirlýsing Júlíus Vífils Ingvarssonar, formanns menntaráðs um byggingu nýs sameinaðs skóla þar sem nemendur Safamýraskóla og Öskjuhlíðarskóla munu sameinast í nýrri byggingu sem reist verður á 20 þúsund fermetra lóð í Suður-Mjódd.

Annað var það líka það sem vakti athygli mína að fjársterkir aðilar komu að fjármögnum verksins, en þeir hinu sömu vildu ekki láta nafn síns getið. Það er virðingarvert og vonandi til þess gert að koma verkinu af stað fyrr en ella.

Nú langar mig bara að vita hvenær verkið hefst og hvenær þessi metnaðarfulla skólabygging verður risin.

 


Völd og stjórnmálamenn

Völd geta haft ótrúleg áhrif á fólk. Því miður oft til hins verra. Þess sér maður oft merki í stjórnmálum.

Í kosningabaráttu eru frambjóðendur allra manna alþýðlegastir, ganga á milli almennings og heilsa öllum sem á leið þeirra verða. Láta hafa sig í allavega trúðslæti og ganga um margt úr sinni eigin persónu. Slá met í brosi og hlýleika og gera allt til að fá kjósendur á sitt band. 

Eftir kosningar eru að sjálfsögðu margir þeirra sem náð hafa kjöri fullir orku að takast á við verkefni stjórnmálamannsins. Þetta verkefni sem þó er aðeins að hámark til fjögurra ára í senn og snýst um það að fara vel og rétt með umboð kjósenda sinna. Þegar sumir stjórnmálamenn hafa hlotið kjör er þó hinsvegar oft eins og nýtt andlit sé sett upp hjá þessum nýkjörnu fulltrúum. Það er eins og forleikurinn hafi aðeins verið sjónarspil.

Margir þessara stjórnmálamanna eru fljótir að gleymi því fyrir hvað þér hafa hlotið upphefð sína. Hversvegna þeir sitja í embætti. Það er einfaldlega oft á tíðum ekki eingöngu vegna hæfileika eða getu viðkomandi, heldur ekki síst vegna styrk ákveðins stjórnmálaflokks og stöðu þeirra í því samfélagi.

Síðan gerist það oft að þegar líður á kjörtímabilið að þá er eins og menn gleymi fyrir hverja þeir sitja sem kjörnir fulltrúar. Í stað þess að þjóna almenningi eða kjósendum sínum, halda menn að þeir séu þarna fyrir sjálfan sig. Þá fyrst fara vandamálin að líta dagsins ljós.

Upphefðin getur nefnilega stigi öllum til höfuðs.  Þeir hætta samskiptum við þá aðila sem komu þeim í valdastólana. Telja sig yfir það hafna að hafa samband við almúgann eða grasrótina. Þeir eru til þess valdir að umgangast fyrirmenn þjóða og tigin fyrirmenni. Þurfa vegna þessa ekki að hafa nema lágmarks samskipti við aðra.

Afverju skrifa ég þetta. Jú ég las nefnilega afar fróðlegt viðtal við Uffe Eleman Jensen fyrrverandi Utanríkisráðherra og formann Venstre í Danmerkurferð minni um daginn. Hann sagði m.a. að það hefði verið sín mesta gæfa í lífinu að hafa aldrei orðið forsætisráðherra Danmerkur en hann sóttist  þó eftir því árum saman. Það sama hafi átt við um stöðu framkvæmdastjóra NATO sem hann sóttist einnig eftir. Hann taldi að hann hefði á þessum tíma verið komið svo langt frá þeim raunveruleika sem venjulegt fólk býr við og þakkaði fyrir það að hafa ekki færst enn lengra frá frá almenningi.

Það hefði í raun bjargað lífi hans að hljóta ekki þessa upphefð.

Þetta er án efa sá vandi sem margir stjórnmálamenn standa frammi fyrir. Að þeir velji sér aðeins einstaklinga næst sér sem tilheyra hópi viðhlæjanda. Allir sem standa fjær og gagnrýna stjórnmálamanninn er þannig úthrópaðir sem andstæðingur ef ekki eitthvað enn verra.

Þannig gerist það smátt og smátt að sumir stjórnmálamenn eru komnir svo fjarri þeim raunveruleika sem almenningur býr við að þeir hafa ekki lengur nein tengsl við kjósendur. Jafnframt verða þeir hinir sömu ekki lengur hæfir til að taka ákvarðanir í þágu almennings


Höfundur

Anna Kristinsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Stjórnmálafræðingur, MPA nemi og áhugamaður um samfélagsmál

Mitt val

Blogg Gáttin

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband