Leita í fréttum mbl.is

Að vera klæddur á kostnað flokksins

Í mörg herrans ár styrkti ég Framsóknarflokkinn mánaðarlega með framlagi mínu. Þessi framlög áttu að styrkja flokkinn í því að koma á framfæri stefnumálum sínum, ekki síst í kosningum.

Aldrei datt mér það í hug, að eitthvað að þeim peningum sem safnað var með þessum hætti meðal flokksmanna og velunnara flokksins færu í neitt annað en koma stefnumálum flokksins á framfæri.

Ef þetta er rétt  hjá Guðjóni Ólafi að  framlög þessi ásamt öðrum framlögum hafi m.a. farið í það að kaupa föt á einstaka frambjóðendur, er flokkurinn komin enn lengra frá uppruna sínum en ég hélt.

Aldrei hef ég áður heyrt af slíku og hvað þá síður að slíkt hafi verið gert í þeim fjölmörgu kosningum sem ég tók þátt í.

Frambjóðendur sækjast sjálfir eftir því að skipa sæti á listum flokka. Leggja jafnvel út í kostnaðarsöm prófkjör til þess að ná kjöri.

Ætli það sé til of mikils ætlað að frambjóðendur borgi fötin utan á sig sjálfir? Eða er þetta nýi takturinn í flokknum?


mbl.is Gagnrýnir fatapeninga framsóknarmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessum meisturum virðist vera ómögulegt að komast í gegnum heilt misseri án þess að dýpka holuna sem flokkurinn situr fastur í.

Barði Barðason (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 21:15

2 identicon

Eru ekki allir í boltanum?  Gaman að fylgjast með af hliðarlínunni!

Gleðilegt árið Barði minn!

Sigrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 03:10

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þegar ég var í Framsóknarfélagi Reykjavíkur fyrir áratugum óð þar uppi rógur og gagnrýni frá fólki sem kallaði sig vinstra fólk.Rógurinn beindist ekki síst að ákveðnum einstaklingi sem var nákominn þér Anna og var í forystu flokksins og góður í fjármálum.Það er engu líkara en rógurinn og dylgjurnar ætli aldrei að taka enda.En eitt er rógsliðinu sameiginlegt, það heldur alltaf áfram að kalla sig vinstra fólk og þú ert parturinn af þessu liði núna Anna.Og alltaf segir þetta lið að flokkurinn hafi færst frá uppruna sínum,rétt eins og það hefur sagt í áratugi.Og fomaður flokksins segist vera vinstri maður sem og meðreiðarsveinn hans í Árborg.Báðir segjast þeir vera hrifnir af fjósalykt.En það er klárega skítalykt af málflutningi svokallaðra vinstrimanna í R.vík.Ég tel mig til að mynda ekki minni vinstrimann en þetta rógburðarlið.

Sigurgeir Jónsson, 19.1.2008 kl. 09:08

4 Smámynd: Anna Kristinsdóttir

Sigurgeir,

Gott er ef þú getur staðsett mig hægra eða vinstra megin við miðju. Ég hef sjálf oftar en ekki verið meira sammála hægri flokkum en þeim til vinstri í málflutningi sínum. Hvort það gerir mig að vinstri manni veit ég ekki.

Ég  á erfitt með að skilja skrif þín en vil láta þig vita að ég tilheyri ekki einum eða öðrum hóp innan framsóknarflokksins þar sem ég er ekki hluti af flokknum.

Anna Kristinsdóttir, 19.1.2008 kl. 11:45

5 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heil og sæl Anna.

Ég er undrandi á öllu þessu málum sem herja Framsóknarflokkinn í dag. Satt best að segja ef þetta er rétt hjá Guðjóni að Björn Ingi og Óskar Bergsson hafi misnotað aðstöðu sína þá ber þeim báðum að segja af sér og láta sína félaga hafa sætin sín það er krafa númer 1.

Þetta er dapurlegur endir á stjórnmála ferli manns sem vildi komast lengra nú tel ég hans daga vera búna og spurning hvenær þessu samtarfi í borgarstjórn líkur. Ég mun ekki trúa því að Dagur B Eggertsson muni starfa lengur með Björn Inga Hrafnsyni eftir þessa uppá komu.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 20.1.2008 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Kristinsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Stjórnmálafræðingur, MPA nemi og áhugamaður um samfélagsmál

Mitt val

Blogg Gáttin

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband