26.5.2008 | 00:02
Skóstærð og gáfur
Mælingar á árangri geta oft á tíðum verið sérkennilegar. Hvað skilar góðu starfi og hvað ekki og hverjir eru að vinna sína vinnu og hverjir ekki?
Í aðferðarfræði í HÍ var gjarnan talað um að skóstærð væri ekki endilega réttur mælikvarði á gáfur einstaklings. Það að flestir þeir sem nota skóstærð 40 væru gáfaðri en þeir sem nota skóstærð 30 væri ekki endilega mælikvarði á, að stærri skór þýddu meiri gáfur. Þar þyrfti að taka aðra þætti þar inn í.
Þannig virðist mér það vera með þær mælingar sem menn virðast keppast við að setja á árangur borgarfulltrúa þessa dagana.
Í síðustu viku voru það ferðalög, eða kostnaður við þau, sem áttu þannig að mæla getu manna til þess að sinna starfinu. Veit samt ekki hvort það voru þeir sem ferðuðust mest eða minnst sem voru verstir. Nú um helgina var það DV sem tók saman mætingu og ástundun kjörinna borgarfulltrúa allra flokka á borgarstjórnarfundi. Hverjir mæta oftast og hverjir sjaldnast. Ekki er langt síðan að laun einstakra borgarfulltrúa voru birt. Hverjir fá mest og hverjir minna.
Allt má segja að þetta séu einhverskonar mælikvarðar á störf borgarfulltrúa.
Í annarri grein samþykkta um stjórn Reykjavíkurborgar kemur fram að " Borgarstjórn fer með stjórn Reykjavíkurborgar, gætir hagsmuna hennar, er í fyrirsvari fyrir hana og vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna".
Í 41.grein sömu samþykkta stendur "Borgarfulltrúa ber að gegna störfum sínum í borgarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna Reykjavíkurborgar, en í störfum sínum er borgarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni."
Hvernig þessum samþykktum er best framfylgt, eru án efa ótalmörg svör við. Það sem einum finnst góð frammistaða finnst öðrum slök.
Mælingin á árangur er því aldrei eins í augum tveggja einstaklinga. Á endanum er það síðan kjósandinn sem velur sína fulltrúa í borgarstjórn í næstu kosningum vorið 2010.
Þá fyrst eru störf einstaklinganna sett undir raunverulega mælistiku og sú mæling gildir næstu fjögur ár. Þangað til eru slíkar mælingar á hverskonar skóstærðir og gáfur, ekki til neins.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Mitt val
Blogg Gáttin
Bloggvinir
- vestfirdingurinn
- golli
- bjarnihardar
- amman
- jp
- bjorkv
- bryndisisfold
- olimikka
- salvor
- agnesasta
- eyglohardar
- orri
- gudfinnur
- gesturgudjonsson
- korntop
- sveitaorar
- stebbifr
- helgasigrun
- kex
- garibald
- strandir
- hlini
- gullistef
- bleikaeldingin
- kristinhelga
- sigurdurarna
- perlaheim
- saethorhelgi
- tidarandinn
- gisliivars
- arndisthor
- kristbjorg
- ibb
- inaval
- fararstjorinn
- laugardalur
- lks
- hildurhelgas
- ingithor
- nonniblogg
- faereyja
Af mbl.is
Innlent
- Settist inn í bíl og hótaði ökumanni með hnífi
- Kjaradeilum við Sorpu vísað til ríkissáttasemjara
- Allir þurfa að vera jafn ósáttir
- Frumskylda mín að huga að börnunum mínum
- Eins og umboðsmanni barna sé alveg sama um það
- Fauk í flest skjól á Suðurnesjum
- Gekk fram á snjóflóð í Úlfarsfelli
- Segir hættustigið forvörn fyrir helgina
Erlent
- Enginn meðbyr hjá Breivik
- Marianne Faithfull látin
- Momika myrtur í beinni á TikTok
- Ólíklegt að nokkur hafi komist lífs af
- Norska stjórnin sprungin: Ósátt um orkumál og valdframsal til ESB
- Rússneskir heimsmeistarar í listhlaupi voru um borð í vélinni
- Vilja að fangar afpláni erlendis
- Þriðju fanga- og gíslaskiptin í dag
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.