Leita í fréttum mbl.is

Ađ meta sín eigin mistök

Verkefnaskil í dag í tveim áföngum í MPA náminu. Verkefnin voru ólík. Annarsvegar verkefni sem snéri ađ skođun á ríkisstyrkjum og ríkisábyrgđum og hinsvegar mat á eigin mistökum í starfi.

 

Var lengi ađ velta ţví síđarnefnda fyrir mér. Held ađ ţađ sé ekki endilega í mannlegu eđli ađ vera sífelt ađ viđurkenna mistök. Oft fara mál ekki eins og mađur óskađi, en ţađ er erfitt ađ viđurkenna ađ slíkt sé vegna eigin mistaka. Ţađ ţurfti ţví nokkuđ átak til ađ horfa á einstakt verkefni og jafnframt viđurkenna mistök viđ framkvćmd ţess.

 

Mitt verkefni var ađ skođa breytingaferli sem ég tók ţátt í, út frá kenningum ţriggja frćđimanna um breytingastjórnun,  Kotter og síđan Heifetz og Linsky. Varđ ađ taka verkefni sem mér var faliđ og skođa ítarlega allt ferliđ. Hvar urđu mér á mistök og hvađ gerđi ég vel. Varđ mér ótrúlega lćrdómsríkt. Ekki síst ţegar mađur veltir fyrir sér hvernig verkefnin gćtu veriđ mun auđveldari ef ţau eru unnin rétt í byrjun.

 

Ţegar ég hafđi lokiđ ţessari skođun fannst mér ég mađur ađ meiri ađ geta viđurkennt mistök. Hafđi líka skrifađ mig frá málinu ađ vissu leiti.  Gat líka auđveldlega skođađ fleiri verkefni međ sömu gleraugum.

 

Held ađ ţađ sé öllum hollt ađ fara í gegnum slíka skođun, ţađ gerir einstaklinginn einfaldlega öflugri í ađ takast á viđ nćstu verkefni. Hollt ađ geta metiđ sín eigin mistök.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Anna Kristinsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Stjórnmálafræðingur, MPA nemi og áhugamaður um samfélagsmál

Mitt val

Blogg Gáttin

Nóv. 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband