20.3.2007 | 15:23
Framför eða afturhvarf?
Úr ræðu borgarstjóra við framlagningu frumvarps um þriggja ára rekstraráætlun Reykjavíkurborgar á fundi borgarstjórnar í dag;
Sérstök áhersla verður lögð á sérkennslu fyrir mikið fatlaða nemendur og á ráðgjöf og aðstoð við nemendur sem eiga við hegðunarvandamál að etja.
Hélt að stefna borgarinnar um skóla án aðgreiningar legði ekki sérstaka áherslu á að fötluðum nemendum yrði kennt sér. Eða þýðir þetta kannski að leggja eigi meiri áherslu á aðstoð inn í bekki sem mikil þörf er á?
Nú er bara að bíða og sjá hvað þetta þýðir í raun fyrir fatlaða nemendur í almennum skólum.
Svo ber að fagna aukinni ráðgjöf og aðstoð við nemendur með hegðunarfrávik. Orð í tíma töluð.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Mitt val
Blogg Gáttin
Bloggvinir
- vestfirdingurinn
- golli
- bjarnihardar
- amman
- jp
- bjorkv
- bryndisisfold
- olimikka
- salvor
- agnesasta
- eyglohardar
- orri
- gudfinnur
- gesturgudjonsson
- korntop
- sveitaorar
- stebbifr
- helgasigrun
- kex
- garibald
- strandir
- hlini
- gullistef
- bleikaeldingin
- kristinhelga
- sigurdurarna
- perlaheim
- saethorhelgi
- tidarandinn
- gisliivars
- arndisthor
- kristbjorg
- ibb
- inaval
- fararstjorinn
- laugardalur
- lks
- hildurhelgas
- ingithor
- nonniblogg
- faereyja
Athugasemdir
Ég er sammála þér það verður spennndi að sjá hvað gerist. Það virðist hins vegar vera enn við lýði að stofna sérskóla og halda fötluðum nemendum frá "hinum" nemendunum og eru það að mínu mati mikil mistök því þá fara allir nemendurnir á mis við mikið og er þarna um ranga grundvallarhugsun að ræða. Rannsóknir hafa einmitt sýnt að þeir fatlaðir nemendur sem fara í gegnum almenna skólakerfið farnast betur í lífinu.
Kristbjörg Þórisdóttir, 20.3.2007 kl. 20:05
Er hjartanlega sammála síðasta ræðumanni, og tala þar af mikilli
reynslu!!!!!!!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.3.2007 kl. 00:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.