7.2.2007 | 12:33
Að grafa upp gömul bein.
Vandinn snýst hinsvegar um hvernig taka á því að menn hafi verið beitir harðræði fyrir áratugum síðan. Á að draga einstaka menn til ábyrgðar eða þá sem sátu við stjórnvölin. Eiga þessir einstaklingar rétt á bótum vegna þess harðræðis eða duga önnur meðul?
Mál sem að undanförnu hafa verið dregin fram í dagsljósið af fjölmiðlum sýna að það er margt sem átti sér stað í íslensku samfélagi sem er ótrúlegt er að hafi viðgengist árum og áratugum saman.
Samfélagið hefur sem betur fer breyst til batnaðar í aðbúnaði sínum við slíka samfélagshópa á liðnum áratugum. En fjölmiðlar hafa að mínu mati gert rétt í að minna okkur á skyldur okkar við þá og samábyrgð okkar allra gagnvart þeim.
Aðbúnaður þeirra sem áttu högg að sækja virðist hafa verið sínu verstur.
Málefni heyrnleysingjaskólans og þeir atburðir sem þar áttu sér stað í þögninni.
Stofnanir eins og Breiðavík og drengirnir sem þar voru vistaðir.
Kópavogshæli og aðbúnaði vistmanna þar.
Miklu fleiri dæmi eru þarna úti og rétt að draga þau fram í dagsljósið
Margt af því sem þarna gerðist er samfélaginu öllu til skammar.
Fjölmiðlar hafa haft frumkvæði á að koma þessum málum upp á borðið.
Almenningu á einnig rétt á að hið opinbera stígi fram og setji af stað opinbera rannsókn á þeim úrræðum sem beitt var á síðustu öld í þjónustu við þessa hópa.
Annars hanga beinagrindurnar áfram í skápnum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Mitt val
Blogg Gáttin
Bloggvinir
- vestfirdingurinn
- golli
- bjarnihardar
- amman
- jp
- bjorkv
- bryndisisfold
- olimikka
- salvor
- agnesasta
- eyglohardar
- orri
- gudfinnur
- gesturgudjonsson
- korntop
- sveitaorar
- stebbifr
- helgasigrun
- kex
- garibald
- strandir
- hlini
- gullistef
- bleikaeldingin
- kristinhelga
- sigurdurarna
- perlaheim
- saethorhelgi
- tidarandinn
- gisliivars
- arndisthor
- kristbjorg
- ibb
- inaval
- fararstjorinn
- laugardalur
- lks
- hildurhelgas
- ingithor
- nonniblogg
- faereyja
Af mbl.is
Erlent
- ESB bannar notkun á BPA í umbúðum um matvæli
- Níu handteknir vegna brunans á skíðahótelinu
- Trump myndi hugnast kaup Musks á TikTok
- Hafa til klukkan 17 til að senda starfsmenn í leyfi
- Heita því að tryggja þjóðaröryggi sitt
- Sakar biskupinn um viðurstyggilegan tón
- Fjórir særðir eftir stunguárás í Tel Aviv
Athugasemdir
Já, er það furða að maður hafi takmarkaða trú á mannkyninu við umhugsun um þessi mál?
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.2.2007 kl. 18:13
Maður leiðir hugann að því hvað það séu margar svona "beinagrindur" sem aldrei komast út úr skápnum.
Kristbjörg Þórisdóttir, 7.2.2007 kl. 18:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.