Leita í fréttum mbl.is

Framsókn og Frjálslyndi flokkurinn ekki með

Fyrsta stjórn Ríkisútvarpsins ohf eftir stjórnarskiptin vorið 2007.

Þegar síðast var kosið í stjórnina í febrúar 2007  voru kosin: Ómar Benediktsson, Kristín Edwald, Páll Magnússon, Jón Ásgeir Sigurðsson og Svanhildur Kaaber.

Nú á Framsóknarflokkurinn ekki lengur sæti í ríkistjórn og jafnframt í fyrsta sinn á flokkurinn engan aðalmann í stjórn. Áður hafði hann átt sæti í útvarpsráði eða stjórn Ríkisútvarpsins ohf.

Ljóst að Framsóknarflokkurinn er að komast á sama stall og Frjálslyndi flokkurinn, sem lítil áhrifalaus flokkur í minnihluta.

Svona er lýðræðið, þeir litlu fá ekki að vera með.

 


mbl.is Fimm kosin í stjórn RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það er flott. Þar á einmitt Framsóknarflokkurinn heima, þ.e á sama stað og Frjálslyndi flokkurinn.  Hvernig væri bara að leysa hann alveg upp? Þá væri öllum mikill greiði gerður.

Viktoría (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 20:08

2 Smámynd: Hallur Magnússon

Þetta er táknræn endalok fyrir Framsóknarflokkinn sem bæði missteig sig í fjölmiðlamálinu og í málefnum Ríkisútvarpsins. Þau mál eru ein ástæða stöðu flokksins í dag.

En Viktoría mín. Ég efast um að öllum væri mikill greiði gerður með að leysa upp Framsóknarflokkinn sem átti þátt í flestum framfaramálum íslensks samfélags á síðustu öld. Getur þú rökstutt þess staðhæfingu þína betur?

Hallur Magnússon, 17.4.2008 kl. 20:24

3 identicon

Sæll Hallur, ég er nú ekki Viktoría þín en jú ég get rökstutt það. 

Framsóknarmenn eru bara búnir að klúðra málunum of oft til þess að e-r hafi trú á þeim og þess vegna komin tími til að segja þetta gott. Mér er alveg sama um afrek fyrri ára. Það eru komin svo mörg ár síðan að það er alveg kominn tími á það að segja þetta bara gott fyrir fullt og allt og hætta að reyna að halda í afrek sem áttu sér stað á miðri síðustu öld.  Svona spillingardans eins og átti sér stað innan flokksins eyðilagði hann og ég held hreinlega að hann sé of skemmdur til að hægt sé að bæta.

Það virðast hvort eð er allir vera hættir í þessum flokki og ef þeir eru ekki hættir þá annað hvort heyrist svona lítið í þeim eða maður er bara orðinn ónæmur fyrir röflinu og vitleysunni sem vellur upp úr þeim örfáu mönnum sem enn halda sig við flokkinn.

Þannig að Hallur "minn" þá bara get ég ekki séð að landsmenn græði neitt sérstaklega á því að hafa þennan lítt aðlaðandi flokk starfandi. 

Hver myndi hugsanlega kjósa Framsóknarflokkinn? Nei, ég bara spyr.  Þeir Framsóknarmenn sem ég hef þekkt í gegnum tíðina hafa allavega allir yfirgefið sökkvandi skipið. 

Viktoría (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 21:26

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Framsóknarflokkurinn átti þátt í mörgum framfaramálum liðinnar aldar rétt er það.

Einkum gilti það um fyrstu árin frá 1927 til 1937, enda var einstakt góðæri og uppgangur fyrstu árin.

En enginn flokkur barðist eins hatramlega fyrir óréttlátri kjördæmaskipan og Framsóknarflokkurinn og fljótlega hékk flokkurinn eins og hundur á roði á spilltu fyrirgreiðslukerfi hafta sem byggðist á nær endalausri stjórnarþátttöku.

Þegar jafn stórir flokkar og Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin færast nær hvor öðrum klemmast miðjuflokkar á milli. Það á jafnt við um Framsókn og frjálslynda.

Framsókn og frjálslyndir gætu sameinast um frjálslynda miðjustefnu en þá er það enn Framsóknarflokkurinn sem kemur í veg fyrir slíkt með því að njörva sig við kvótakerfið.

Ómar Ragnarsson, 17.4.2008 kl. 23:13

5 Smámynd: B Ewing

Svo að þessi ágæta færsla fari ekki að fjalla um allt aðra hluti en höfundur skrifaði um þá ætla ég bara að senda Halli Magnússyni samúðarkveðjur og vona að hann fari að opna augun fyrir 21. öldinni.  Framsókn má segja bless fyrir fullt og allt.  Hans tími er löngu liðinn, því miður/sem betur fer (eftir því hver horfir á hlutina).

B Ewing, 18.4.2008 kl. 01:40

6 Smámynd: Anna Kristinsdóttir

Allt á upphaf og enda. Slíkt á líka við líf stjórnmálaflokka.

Ekki síst á það við ef þeir ekki ganga í gegnum endurnýjum, í takt við breytingar í þjóðfélaginu.

Framsókn átti erindi við kjósendur við stofnun hans árið 1916. Erindi flokksins í dag við kjósendur er erfiðara að skilgreina. Ekki síst nú þegar margir flokka eru á miðju stjórnmálanna.

Evrópusinnin Hallur veit það að það eru aðrir flokkar sem myndu henta betur hans sýn í þeim málaflokki en framsóknarflokkurinn.

En lengi má reyna.

Anna Kristinsdóttir, 18.4.2008 kl. 09:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Kristinsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Stjórnmálafræðingur, MPA nemi og áhugamaður um samfélagsmál

Mitt val

Blogg Gáttin

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband