Leita í fréttum mbl.is

Gott framtak

Hlýt að fagna þessu ágæta framtaki. Öruggt mál að íbúar hverfa borgarinnar eru oftast best að sér í málefnum sinna hverfa. Þeir vita hvernig hjartað slær í hverfinu og hvað má betur fara. Hljóta að vera margar góðar hugmyndir sem hægt er að koma í framkvæmd með þessum hætti.

20 nóvember s.l. var formlega stofnuð Íbúasamtök bústaðahverfis. Undirbúningur hafði staðið yfir um nokkuð skeið og raunverulega var um að ræða að endurvekja íbúasamtökin betra líf í Bústaðarhverfi.

Félagssvæði íbúasamtakana afmarkast af Miklubraut í norðri, Reykjanesbraut í austri, Fossvogsdal í suðri sunnan Bústaðarvegar að Kringlumýrarbraut og Grensásvegi í vestri. 

Ég er í stjórn þessara íbúasamtaka og við höldum okkar fyrsta stjórnarfund n.k. fimmtudag. Við höfum nú þegar fengið inn á okkar borð erindi frá íbúum og ætlum okkur að hefja kraftmikið starf á nýju ári.

Þá verður gott að vita af slíkum sjóð til að leita í til að koma góðum hugmyndum í framkvæmd í hverfinu okkar.


mbl.is 300 milljónir til hverfistengdra verkefna í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanfríður Guðrún Gísladóttir

 Sæl Anna mín Ótrúglegt annað en þú ,,BLOGGAÐIR" gott er að vera búin að finna þig. Á eftir að fylgjast með þér í framtíðinni, ég veit að þú hefur alltaf eitthvað málefnanegt fram að færa ! Kv. SGG 

Svanfríður Guðrún Gísladóttir, 29.11.2007 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Kristinsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Stjórnmálafræðingur, MPA nemi og áhugamaður um samfélagsmál

Mitt val

Blogg Gáttin

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband