Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Áhugaverð könnun um skipulagsmál

þessi könnun tengist því efni sem ég vinn að í lokaritgerð minni í meistaranáminu og snýr að skipulagsmálum og tengingu stjórnmála og stjórnsýslu. Verður athyglisvert að kynna sér hana nánar.

Kemur fram að sýn forsvarsmanna fyrirtækja og framkvæmdaaðila og hinsvegar stjórnsýslunnar er ekki sú sama. Tengist án efa því að menn vilja hraðari afgreiðslu og skýrari sýn á skipulag sveitarfélaganna.  

Tel þó að sveitarfélög vilji gera vel í þessum málaflokki en það er oft erfitt fyrir sveitarfélögin að vera fyrri til en framkvæmdaraðilarnir að setja fram heildarsýn í skipulagsmálum sveitarfélagsins. Sérstaklega þegar byggingarframkvæmdir eru eins miklar t.d. á höfuðborgarsvæðinu og hefur verið að undanförnum misserum.

Það jákvæða við þessa könnun er að tæp 70% fyrirtækjanna telja sig kom að gerð nýs atvinnuhúsnæðis á næstu 12 mánauðum og hvetur  það til til bjartsýni.

Kannski er ástandið ekki eins svart framundan og margir vilja telja.


mbl.is Framkvæmdaaðilar óánægðir með sveitarfélögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta líf

Fékk þennan ótrúlega "viðsnúning" sendan í morgun frá bróður mínum sem býr á Nýja sjálandi.

Eftir ferð mína þangað um jól og áramót, má segja að ég hafi sannfærst um að þar sé allt öðruvísi en hér hinum megin.

Þeir horfa á heiminn í öðru ljósi og það virðist Woody Allen gera líka.

Next Life" by Woody Allen


  In my next life I want to live my life backwards. You start out dead and
get that out of the way. Then you wake up in an old people's home feeling
better every day. You get kicked out for being too healthy, go collect your
pension, and then when you start work, you get a gold watch and a party on
your first day. You work for 40 years until you're young enough to enjoy
your retirement. You party, drink alcohol, and are generally promiscuous,
then you are ready for high school. You then go to primary school, you
become a kid, you play. You have no
  responsibilities, you become a baby until you are born. And then you spend
your last 9 months floating in luxurious spa-like conditions with central
heating and room service on tap, larger quarters every day and then Voila!
You finish off as an orgasm!
  I rest my case.


Er ekki vitlaust gefið?

Þær 12 stofnanir sem fóru fram úr fjárheimildum á árunum 2005, 2006 og 2007 voru, Háskólinn á Akureyri, Námsmatsstofnun, Menntaskólinn á Akureyri , Menntaskólinn að Laugarvatni, Menntaskólinn á Ísafirði, Flensborgarskóli, Fornleifavernd ríkisins, Þjóðleikhúsið, Landbúnaðarstofnun, Landbúnaðarháskóli Íslands, Hólaskóli á Hólum í Hjaltadal, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Í skýrslunni kemur fram að "Í heild nam framúrkeyrslu þeirra 12 stofnana sem eftir standa 841 m.kr. í árslok 2005, 889 m.kr. í árslok 2006 og 867 m.kr. í árslok 2007. Ljóst er að ekki hefur verið tekið á vanda þeirra með fullnægjandi hætti. Þó fengu átta þeirra samtals um 338 m.kr. viðbótarfjárheimildir í fjáraukalögum 2007."

Gefur þetta ekki auga leið. Flest allt menntastofnanir sem fara fram úr fjárheimildum.  Þessar stofnanir hafa ekki fengið nægjanlegar fjárheimildir til að veita þá þjónustu sem þeim er ætlað samkvæmt lögum

Verða menn ekki að fara að beita öðrum vinnubrögðum við fjárlagagerð og árangurstengja betur þær fjárheimildir sem stofnunum er veitt. 

Það getur ekki verið nægjanlegt að greiða niður halla fyrra árs, ef ekki  er í framhaldandi skoðaðar gaumgæfilegar fjárveitingar viðkomandi stofnunar og metið hvort nægjanlegt fjármagn sé til staðar til að halda úti þeirri þjónustu sem veita á. Ef slíkt er ekki gert er það einungis til þess fallið að leikurinn verði endurtekinn með frekari framúrkeyrslu.

Er ástæðan fyrir endurtekinni framúrkeyrslu stofnana ekki einfaldlega vegna þess að ekki er rétt gefið í byrjun?


mbl.is Algerlega ólíðandi framúrkeyrsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var ég fyrir vestan?

Hitti hóp af góðu fólki á laugardagskvöldið. Skemmti mér með ágætum og dansaði líka heilmikið.

Góður maður sem þarna var staddur þakkaði mér fyrir síðast. Sagði að leiðir okkar hefðu legið saman í innanlandsflugi á leið til Ísafjarðar fyrir páska.

Ég kannaðist ekki við það. Var ákveðin í því að vestur hefði ég ekki farið á þessu ári. Hvort þetta hefði ekki verið ein af mínum fjöldamörgu systrum.

Nei, það vildi hann ekki kannast við. Sagði að við hefðum spjallað heilmikið saman. Ekki nóg með það heldur hefði ég farið upp í bíl með Einari Guðfinnssyni þegar komið var til Ísafjarðar.

Þetta hefðu fleiri séð, m.a. bílstjórinn í áætlunarútunni til Bolungarvíkur. Hann hefði líka þekkt mig.

Ég gat engu svarað. Ætli fleiri hafi séð mig þarna fyrir vestan ? 


Unglingar eru besta fólk

Í morgun birtist þriðji hluti ágætar fréttaskýringar eftir Jón Sigurð Eyjólfsson í Fréttablaðinu um unglingana okkar. Fréttaskýring dagsins fjallaði um unglinga og foreldra og hvernig breytt þjóðfélagsmynstur hafi haft áhrif á samskipti barna og fullorðinna.

Þessi ágæta fréttskýring hafði s.l.  föstudag fjallað um atvinnuþátttöku unglinga og kom þar m.a. fram að hagur og hátterni unglinga í dag er um margt ólíkt því sem áður var.

Heilt yfir er mikið vinnuálag á unglingunum og ekkert er gefið eftir í íþrótta og tómstundaiðkun. Þeir  vafra löngum stundum á veraldarvefnum og kjósa jafnvel lestur bóka á ensku fremur en íslenskar unglingabækur. Þeir eru á hraðferð inn í harðan heim hinna fullorðnu og þeir sem skrikar fótur geta orðið illa úti.

Daginn eftir var fjallað um vímuefnaneyslu unglingana og þar kom m.a. fram að forvarnarstarfið í efstu bekkjum grunnskóla hefur borið mikinn árangur. Vímuefnaneysla í framhaldsskólum hefur ekki aukist en margir hafa áhyggjur af því að neyslan hefist fyrr. Unglingum á Vogi hefur fækkað frá aldamótum en þó voru 234 undir 19.ára aldri á Vogi árið 2006. Unglingarnar vilja þó vera dæmd fyrir það sem meirihluti þeirra er að gera en ekki vera dæmdir af misnotkun og myrkraverkum fárra.

Alls vera greinarnar fimm og á morgun mun verða fjallað um kynlíf unglinga.

Þarft framtak hjá fréttablaðinu og eitthvað sem allir foreldrar og uppalendur ættu að gefa sér tíma til að lesa.


Sumarið verður gott

Vorið kemur á þriðjudag. Þá verður komin 15.apríl.

Vorið mun standa rúma viku því fimmtudaginn 24.apríl hefst sumarið. Minningar mínar af sumardeginum fyrsta snúa helst að skátum í skrúðgöngu í slyddu og norðanroki.

Sumarið verður gott og þjóðin nær sér upp úr efnahagsöldudalnum. Það er mín spá á þessum góða degi.

Bjartsýni er eina sem dugar.


mbl.is Vorið kemur á þriðjudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framtíðarsýn unga fólksins?

Hef áhyggjur af öllu því unga fólki sem hefur verið að kaupa sínar íbúðir að undanförnu. Unga fólkið okkar sem hefur talið að krepputal sé aðeins eitthvað sem aðeins er til í hugum miðalda fólk. Þetta sama fólk sem óhrætt tók lán upp að 100% af verði fasteignarinnar.

Hvað gerist ef spá Seðlabankans rætist?

Hversu mikið af þessu unga fólki stendur þá árið 2010 uppi með óseljanlegar eignir og skuldar bankanum meira en það getur nokkuð tíman selt eignina fyrir.

Hrina gjaldþrota mun þá eiga sér stað meðal unga fólksins og án efa mun þetta sama unga fólk velja það að hverfa úr landi og leita tækifæra annars staðar.

Er þetta sú framtíðarsýn sem íslensk stjórnvöld vilja bjóða unga fólkinu okkar upp á? Það þarf aðgerðir strax.

 


mbl.is Alvarleg staða efnahagsmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilur almenningur skipulagsmál?

Ég sé í pistli Oddnýjar Sturludóttur á eyjunni í dag að á hugmyndasmiðju miðborgar, sem haldinn var á vegum samfylkingarinnar í gær, hafi komið fram tillaga um að stofna embætti umboðsmanns borgara í skipulagsmálum.

Ég held að þetta geti verið ágæt tillaga og full þörf á að hjálpa fólkinu í borginni að skilja skipulagsmálin betur. Kannski ekki endilega að stofna embætti umboðsmann en að minnsta kosti gera almenning kleyft að leita sér frekari aðstoðar í skipulagsmálum.

Þótt að á skipulags og byggingarsviði borgarinnar vinni fjöldi sérfræðinga í málaflokknum er álagið mikið á starfsmenn og erfitt að veita almenningi tímafreka þjónustu og jafnframt leiðbeina einstaklingum með ítarlegum hætti í skipulagsmálum.

Sem dæmi um þann fjölda mála sem kemur inn á borð embættismanna á skipulagsviði voru afgreidd 4.500 mál á árinu 2007 á afgreiðslufundum byggingarfulltrúa, 1.950 mál afgreidd á fundum skipulagsfulltrúa og 1.365 mál lögð fram á fundum skipulagsráðs. Þetta er ótrúlegur fjöldi ekki síst þegar starfsmenn sviðsins eru 45.

Það eru tæp tvö ár síðan ég sat sem varaformaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar. Þá voru ófá símtölin sem ég fékk frá fólki í borginni þar sem óskað var eftir leiðbeiningum um hvernig menn ættu að snúa sér vegna skipulagsmála. Hvort sem var vegna einfaldra breytinga á íbúðarhúsnæði eða nýbygginga.

Þótt mér finnist ár og dagur síðan ég sat minn síðasta fund í skipulagsnefndinni eru menn ennþá að biðja mig um leiðbeiningar. Sá síðasti sem það gerði, hringdi í mig í gær.

Það að kæra framkvæmd nágranna fyrir úrskurðarnefnd er ekki einföld, breytingar á deiliskipulagi eða aðalskipulagi hljómar eins og latína í eyrum þeirra sem ekki þekkja.

Það er ekkert einfalt við það reglugerðarfargan sem liggur að baki ákvörðunum í skipulagsmálum.

Á heimsíðu skipulagsviðs koma fram tilvísanir; í skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997. í skipulagsreglugerð nr.400/1998, reglugerð um breytingu á skipulagsreglugerð nr.400/1998 og hér er svo reglugerð um breytingu á skipulagsreglugerð nr. 400/1998, með síðari breytingum.Hér er tilvísun í Byggingarreglugerð nr. 441/1998. Hér eru svo breytingar á byggingarreglugerð:563/2000 - Reglugerð um breytingu á byggingarreglugerð nr. 441/1998.,996/2001 - Reglugerð um breytingu á byggingarreglugerð nr. 441/1998. 133/2002 - Reglugerð um breytingu á byggingarreglugerð nr. 441/1998, með síðari breytingum.425/2002 - Reglugerð um breytingu á byggingarreglugerð nr. 441/1998, með síðari breytingum. reglugerð um skipulagsgjald nr. 737/19,gjaldskrá fyrir bílastæðagjöld einnig eldri reglur um bílastæði -hluti þeirra er enn í gildi. Hér er tafla með bílastæðagjaldinu uppreiknuðu í samræmi við vísitölu,  reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum. nr. 910/2000.lög um fjöleignarhús. nr. 26/1994. lög um tekjustofna sveitarfélaga. nr.4/1995.reglugerð um fasteignaskatt )nr. 945/2000, öðlaðist gildi 1. janúar 2006. Öll lög og reglugerðir varðandi Fasteignamat ríkisins .Upplýsingar um Staðardagskrá 21 og lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg.

Ég held að þessi tillaga sé af hinu góða, fæstir íbúar borgarinnar skilja skipulagmálin til hlítar. A.m.k. það flókna ferli sem hefst þegar menn ætla að að breyta eða byggja húsnæði.

 


Ólafur segir.....

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri Reykvíkinga sagði í kvöldfréttum á RÚV að 10-16 ára fötluð börn fái að stunda frístundastarf á vegum borgarinnar í sumar.

Ólafur F. sagðist muni þrýsta á það við félagsmálaráðuneytið og samband sveitarfélaga að þetta nái fram að ganga og þessum hópum verði tryggð þessi þjónusta í sumar. Hann mun ekki gefa neitt eftir með það.

Ólafur F. sagði að það kæmi aldrei til greina að hann léti það spyrjast um sig, að hann ætli að úthýsa þessum börnum.

Svo mörg voru þau orð. Ég veit að Ólafur F. Magnússon mun tryggja þessum börnum úrræði í sumar. Hann sem borgarstjóri okkar Reykvíkinga hefur völd og úrræði til þess að tryggja slíkt.

Ég treysti því að orð Ólafs standi. Barnið mitt ásamt hinum fötluðu börnunum í borginni fá  þjónustu í sumar. Ég fer áhyggjulaus að sofa í kvöld.

  


Viðræður eru ekki lausn

Ég veit varla hvað ég á að halda eftir síðustu yfirlýsingu Reykjavíkurborgar vegna reksturs frístundaklúbba fatlaðra barna nú í sumar. Kannski ég hafi fagnað of snemma í síðustu færslu minni.

Á vef Vísirs kom fram nú í kvöld fréttatilkynning frá Reykjavíkurborg þar sem meðal annars segir að"af þeirri 56 millj. kr. aukafjárveitingu sem ÍTR fær til reksturs heilsárs frístundaheimila renna 31,7 millj. kr. til stuðnings barna með sérþarfir".  Gott og vel og vel í lagt fyrir þann hóp en Það breytir litlu fyrir þjónustu fyrir fötluð börn 10-16 ára í frístundaklúbbum borgarinnar. Eða þeirra fjölskyldur

Síðar í fréttatilkynningunni kemur fram að "Borgarstjóri mun á næsta fundi borgarráðs leggja fram tillögu um að teknar verði upp viðræður um frekari þróun þjónustunnar sem tryggi fötluðum börnum 10 til 16 ára dvöl í Frístundaklúbbum yfir sumartímann."

Viðræður, hvað skyldi það þýða og við hverja? Við ríkið kannski, um kostnaðarskiptingu við þjónustuna.

Slíkar viðræður taka a.m.k. nokkra mánuði ef ekki ár. Ekki síst þar sem undirbúningur um flutning málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga stendur nú yfir og menn semja varla um aukna þjónustu á meðan.

Verð að viðurkenna að ég horfi ekki bjartsýn fram á sumarið ef Ólafur F. ætlar að eyða því í viðræður um hver á að borga hvað, í þjónustu við fötluðu börnin í borginni.

Á meðan verða fjölskyldur fatlaðra barna í borginni án tómstundaúrræða fyrir börnin sín í sumar.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Anna Kristinsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Stjórnmálafræðingur, MPA nemi og áhugamaður um samfélagsmál

Mitt val

Blogg Gáttin

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband