Leita í fréttum mbl.is

Alþjóðaleikum lokið.

Alþjóðaleikum ungmenna lauk formlega á sunnudaginn. Flestir erlendu gestanna fór til síns heima á mánudags og þriðjudagsmorgun. Enn eru þó nokkrir gestir eftir og þeir síðustu fara síðan af landi brott í fyrramálið.

Ýmislegt kom upp á meðan á leikunum stóð og voru öll mál leyst samstundis án nokkura eftirmála. Eftir stendur þó að mikilli vinnutörn er að ljúka og nauðsynlegt er að gefa sér góðan tíma eftir svona törn til að hlaða batteríin.  

Ég er ein af þeim sem komu að því að koma þessum leikum hingað til Reykjavíkur.

Mín fyrsta þátttaka í Alþjóðaleikum ungmenna var  í Gratz í Austurríki sumarið 2003. Þar mætti ég sem borgarfulltrúi og þar lýstu forsvarsmenn leikanna yfir áhuga sínum við mig á að leikarnir yrðu haldnir í Reykjavík

Ég heimsótti síðan Coventry í Englandi sumarið 2005 þar sem undirritað var samkomulag um að leikarnir yrðu haldnir í Reykjavík 2007. Síðan fékk sem fulltrúi í undirbúningsnefnd leikarnir að heimsækja Bankok í Taílandi sem hélt leikanna í fyrra.

Undirbúningur Reykjavíkur fyrir leikanna tók rúmt ár.

Þótt leikarnir sjálfir snúist fyrst og fremst um keppni í íþróttum eru ótal margir aðrir þættir sem koma þar að og fæstir þeirra almenningi sýnilegir. Mikill fjöldi einstaklinga kom þar að í lengri og skemmri tíma og var gaman að fá tækifæri til að kynnast öllu því góða fólki sem að verkefninu kom.

Nú verða næstu dagar notaðir til að ganga frá, og skila verkefninu af sér. Síðan tekur við gott sumarfrí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björk Vilhelmsdóttir

Til hamingju með þetta stóra verkefni sem nú er að baki. Er þá ekki komin tími til að fara í kaffi eða hvítvín á Austurvöll???

Björk Vilhelmsdóttir, 26.6.2007 kl. 22:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Kristinsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Stjórnmálafræðingur, MPA nemi og áhugamaður um samfélagsmál

Mitt val

Blogg Gáttin

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband